Nýtum allt til góðra verka
EFLA lagði áherslu á endurnýtingu byggingarúrgangs og að lengja líftíma bygginga á fagsýningunni Verk og vit árið 2024.
EFLA er alþjóðlegt þekkingarfyrirtæki sem hefur skapað samfélag sérfræðinga sem kemur til móts við síbreytilegar þarfir viðskiptavina.
Reynir Sævarsson, fyrirliði viðskiptaþróunar og nýsköpunar hjá EFLU, verður með erindi á morgunfundi Skipulagsstofnunar um skipulagsmál og náttúruvá fimmtudaginn 2. maí klukkan 9:00-11.00.
EFLA býður nú starfsfólki sínu upp á fæðingarstyrk þegar það er í fæðingarorlofi. Með þessu vill EFLA leggja sitt af mörkum til að auðvelda starfsfólki að taka fæðingarorlof og samræma vinnu og einkalíf.
Almannavarnir ásamt EFLU og Verkís hlutu Teninginn, viðurkenningu Verkfræðingafélags Íslands fyrir framúrskarandi verkefni eða framkvæmd.
Lausnir byggðar á tæknilegri þekkingu gegna mikilvægu hlutverki við að móta sjálfbæra framtíð. Við hjá EFLU höfum yfir 30 ára reynslu af því að aðstoða viðskiptavini við að stýra rekstri á þann hátt að loftslagsáhrifum og öðrum neikvæðum áhrifum á umhverfið sé haldið í lágmarki. Saman vinnum við að sjálfbærum lausnum.
Nýtt og glæsilegt mannvirki, Hús íslenskunnar, hefur risið við Arngrímsgötu í Reykjavík.